Helvítis blogg!
16. nóvember 2007 klukkan 01:18
Krakkar, Sigþór nokkur Árnason gerði persónulega athugasemd við það að ég væri ekkert búinn að blogga í lengri tíma þannig að hér er blogg tileinkað þeim fallega manni.
Ég get sagt ykkur fréttir úr kórnum, nú er Messan í C dúr að verða að veruleika, fengum einsöngvarana á báðar æfingarnar í þessari viku. Ég man nú ekki hvað þeir heita en mér þykir söngrödd þeirra fögur. Í næstu viku fáum við loksins að heyra þetta og syngja með hljómsveit en það er Ungfónían sem tekur að sér hljóðfæraleik. Ég er alltaf að verða hrifnari og hrifnari af þessari sinfóníu og hugarfar mitt í garð klassískrar tónlistar hefur breyst heilmikið eftir að ég byrjaði í kórnum. Bæði kann ég betur að meta tónlistina og verkin sem slík og svo kann ég betur að hlulsta á hana, heyra hvert hljóðfæri, hvern tón, hverja rödd. Það er æðisgengin tilfinning.
Keli litli, sem fær annan hvern dag ábenndingu á að nú þurfi ég að fara að fita mig, borða meira eða eitthvað í þeim dúr, hefur ákveðið að fara að stunda líkamsrækt að fullu kappi. Já, þá er ég ekki að tala um eitthvað sipp og hljól og skokk, bara streytulausar æfingar í lyftingarsölum borgarinnar með allt sem því tilheyrir, einkaþjálfara, sterum og prótein sælgæti. Ég sé fyrir mér að geta bætt á mig 15 kílóum í ósviknum vöðvamassa á innan við 3 mánuðum. Þetta þarf jú allt mikla skoðun og gæta þarf ýtrustu varkærni því ég hef jú varla lift penna síðan í grunnskóla. Þetta er mikil vinna og ég óska eindregið eftir einhverjum þungaviktarkappa með mér í átakið.
Nú nenni ég ekki meir í bili en ég skal lofa að standa mig betur í blogginu Siþþi minn, ég veit hvað þér finnst það skemmtilegt.
Ég minni samt á að ég er með nokkra forsölumiða í fórum mínum fyrir áhugasama sem vilja koma á tónleikana í Langholtkirkju. Þetta er semsagt Háskólakórinn ásamt ungfóníu, fjórum einsöngvurum í hæsta gæðaklassa og sprenglærðum stjórnanda frá Siglufirði, Gunnsteini Ólafssyni. Miðaverð í forsölu er kr. 1000 fyrir almenning, kr. 500 fyrir eldri borgara og nema. Hafið samband endilega. Tónleikarnir eru annarsvegar sunnudagskvöldið fagra 25. nóv og hinsvegar þriðjudagskvöldið dimma 27. nóv.
Góða nótt

Hrafnkell Sigurđsson
1 athugasemd
1 athugasemd