04. febrúar 2008 klukkan 14:43
Jæja börnin góð, ég hef miklar og skemmtilegar fréttir handa ykkur öllum svo sumum mun þykja undarlegar og enn öðrum ótrúlegar. Ég er óléttur. Já, þar hafiði það, ég er með barn í maganum og mun vera með næstu níu mánuði. Það er enn aðeins frumubreyting í kviðarholinu en mun stækka ört og sprynga út eins og blóm í eggi þar til það fæðist sem afkvæmi mitt sem ég mun gefa heiminum. Hvort kynið það verður er ekki gott að seigja á þessu stigi, þó tel ég að það verði kvennkyns, með létt yfirbragð, kannski ljóshærð, blá augu. Ég þarf að gefa mér tíma í að vera óléttur næstu mánuði þannig að ekki fyllast vonleysi þó ég verði ekki í 90% vinnu við að vera vinur í þann tíma.
Bið ykkur vel að lifa.
Hrafnkell
Hrafnkell Sigurðsson
31. janúar 2008 klukkan 01:41
"Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur?" Það er góð spurning, en ég fór á góðra vina fund kórfélaga um helgina og skemmti mér svona líka glatt. Fyrst var mér boðið í skemmtilegt teiti hjá leikfélagi hí hjá Rut frænku á Ránargötu. Þar var gullþema og við Bjarni sem er einmitt í leikfélaginu ákváðum að ganga alla leið og mála okkur í framan með gulli og festa gullstjörnur í andlit okkar. Fórum við svona í partýið og vöktum þó nokkra lukku. En eftir 4 bjóra og hvítvínsglas hjá frænku kvaddi ég það partý og gekk sem leið lá upp í skipholt þar sem beið enn meira fólk og þar var drukkið fram til að verða þrjú, þá var farið í miðbæinn og stigin nokkur vel valin dansspor með dömunum í kórnum og Leó. Það var æðislegt, langt síðan ég hef skemmt mér jafn vel downtown.
Vikan sem leið var frekar einkennileg þó ekki sé meira sagt. Burt séð frá allri umræðu um Ólaf F. Magnússon borgarstjóra Reykjavíkur vil ég minna alla þá sjálfstæðismenn sem lesa þetta blogg mitt og eru eflaust á sömu skoðun og flokksbræður þeirra um mótmælin á pöllum ráðhússins, á það að í lýðræði liggur fyrir sú grunndvallarkenning að stjórnmálamennirnir eiga að hlýða á og fylgja vilja lýðsins í landinu, fólkið á ekki að hlýða vilja stjórnvalda. Ekki orð um það meir!
Ég hef lítið geta sofið síðustu nætur sem er undarlegt. Hef verið að vakna mikið upp um miðjar nætur kófsveittur og dreymt skuggalega drauma sem ég hef ekki eftir hér. Eru ráð við þessu? Jóga og grænt te? Eða minni áfengisneysla og meiri líkamsrækt?
Spirit of the Moonflower eru nú að hefjast handa við upptökur á vonandi fyrstu EP plötunni okkar. Hún verður mögnuð ef fram fer sem horfir, okkur vantar núna aðalega æfingarpláss. Veit einhver um.
Ég ætla að fara að sofa í hausinn á mér, góða nótt.
Hrafnkell Sigurðsson
25. janúar 2008 klukkan 10:42
Listamenn, þeir geta verið nokkuð skemmtilegar týpur. Ég hef verið að kynna mér hina og þessa íslenska listamenn uppá síðkastið og þar á meðal alnafna minn Hrafnkel Sigurðsson. Á heimasíðu hans hrafnkellsigurdsson.com má finna verk eftir kappan, þar á meðal hin þekktu tjaldverk sem m.a. príddu kápu símaskrárinnar fyrir nokkrum árum. En á meðal verka er video-verkið "Circulator". Verkið er DVD "loopa" sem sýnir mann liggja hálfpartinn á herðunum með fætur teinréttar uppí loft. Maðurinn er alsnakinn og er að hafa þvaglát uppí sig. Þetta verk er eins og áður segir loopa svo bunan stöðvast aldrei. Þetta þótti mér persónulega frekar ógeðfellt svoekki sé meira sagt, enda trúlega tilgangur verksins að kalla fram slík viðbrögð áhorfandans. Engu að síður finn ég sterka samlíkingu við þetta verk hjá borgarstjórn reykjavíkur þar sem þeir ágætu einstaklingar sem þar hafa nú rænt völdum án nokkurrar málefnalegrar skýringar, án samþykkis borgarbúa, án grundvallar eru nokkurnvegin búnir að kingja sínu eigin hlandi trekk í trekk. Þar stendur einn maður fram, seigist ekki vilja vera lengur í fráfarandi meirihluta, eða eins og Villi sagði, hann vildi út og við buðum honum samstarf. Einn maður ákvað það að betra væri að eyðileggja gott starf fyrrverandi meirihluta með því að en að býða fram að kostingum og getað þá myndað meirihluta á grundvelli málefna og trúverðugleika. Hér hefur Ólafur F Magnússon sýnt það í verki að hann sóttist einungis eftir valdastöðu, hann vildi verða borgarstjóri og þetta var hans síðasti séns. Til hamingju Ólafur, þú hefur eyðilagt fyrir okkur öllum!
Hrafnkell Sigurðsson
25. desember 2007 klukkan 00:12
Ég ákvað að nota þessar síðustu mínútur aðfangadags til að skrifa nokkur orð yfir kaffibollanum langþráða sem ég hef ekki fengið síðan í vinnunni í dag, og var það ekki sérlega rart. Fékk mikið af gjöfum, þó vantaði eina, og sömuleiðis vantaði eina frá mér.
Ýmislegt hefur gengið á síðustu vikur og má seigja að tillfinningalegt stríð hafi geisað innra með mér þó skelin sem hjúpi hjarta mitt láti lítið út af bera. Svaf lítið fyrstu vikuna og finnst ég hafa bókstaflega brennt sál annarar manneskju. Og fyrir hvað? Hamingju? Frelsi? Eða er ég einfaldlega óvandaður og illa gefinn. Ég læt mig dreyma um að svo sé ekki og reyni að halda andliti, kynna mér nýja hluti, fræðast. Er núna t.d. byrjaður að lesa Heimsljós. Þar lýsir Ó.Kárason ljósvíkingur æsku sinni í fyrstu köflum bókarinnar og tengsl hans við Guð og hið heilaga sem yfir honum býr. Ég vildi stundum óska þess ég þessi tilfinning væri í mínum líkama sem Laxness skrifar svo listi vel um á blaðsíður bókarinnar. Ég get ekki beðið eftir því að halda áfram. Ég hef einnig verið að kynna mér nýja tónlist, hana má skoða hér í glugga til hægri. Gaman af sænsku systkynunum í The Knife, kanadíska indie bandinu Arcade Fire, svo ekki sé minnst á afríska jass/funk-istann Fela Kuti. Þetta hefur allt glatt mig þó nokkuð, en samt er það dauði og djöfull að breiða sængina yfir haus á kvöldin, einn; sofa yfir sig á morgnanna, einn; enginn til að faðma né kyssa; enginn til að fara með í búð, sækja í skólan, enginn vill vita hvar ég er eða hvað ég hef gert yfir daginn. Nú er það allt undir mér komið, ég sit einn í stýrishúsin og þen seglin því nú markast nýtt upphaf í mínu lífi.
Lifið heil.
Hrafnkell Sigurðsson
03. desember 2007 klukkan 15:24
Ég er að uppgvöta Bítlana!!
Hrafnkell Sigurðsson
23. nóvember 2007 klukkan 15:38
Reykjavík, 23. nóvember 2007 kl. 15:12
Skygni: Byggingarkranar, rigning, sé ekki esjuna fyrir þoku (horft í suð-austur), hæg suðvestanátt.
Eldaði mér fiskibúðing og kartöflur, spældi líka egg og át með tómatsósu og drakk léttmjólk með. Gríðargott, fékk mér svo sterkt kaffi á eftir. Er búinn að renna einusinni í gegnum messu í C.
En hvað um það, héðan er það helst að frétta að það er verið að reisa 8. byggingarkranan fyrir utan gluggan hjá mér einmitt þessa stundina. Það mætti halda að þeir væru að reisa kjarnorkuver eða eldflaugaskotpall. Ég er þó heppinn að búa ekki á lindargötu 42, það ágæta hús snýr að lindargötu og framkvæmdirnar eru bókstaflega uppvið svaladyrnar hjá því fólki. Gæti gískað á 7-10 metrar.
Er enn ekki byrjaður í ræktinni þótt ég sé búinn að komast að því að mér býðst ókeypis aðstaða í skjúkraþjálfuninni í skjóli. Skrambi gott það þar sem kort í líkamsræktarstöð kostar hönd og fót. Þar er líka prýðis aðstaða, þyrfti bara að fá einhverskonar plan hjá einhverjum sem veitt eitthvað um þessa hluti.
Ég hreinlega hef ekkert meira að blaðra um í bili en minni enn og aftur á tónleikana á sunnudaginn og svo aftur á þriðjudaginn. Ég get útvegað ykkur miða á hvort kvöld sem er í forsölu, 1000 kr. fyrir fullorðna 500 kr. fyrir nema, eldri og yngri kynslóðina. Byrja kl. 20 í langholtskirkju. Endilega mætið, þetta er viðburður ársins og kostar minna en Bó Hall í höllinni!!
Kveð, keli.
Hrafnkell Sigurðsson