15. febrúar 2009 klukkan 15:41
Þá fær fyrsta blogg febrúarmánaðar loksins að líta dagsins ljós, og ekki seinna vænna. Ýmislegt hefur gerst síðustu vikur og daga, höfum farið út um alla borg í leit að íbúð, skoðað og spegúlerað og loksins í gær féllumst við á eina. Sú er í 19. hverfi borgarinnar, nánar tiltekið á Diemgasse, sem er nokkuð langt frá miðborginni sjálfri og eiginlega hálfgert úthverfi, en samgöngur til og frá eru góðar og rétt hjá er stór verslunarmiðstöð þar sem hægt er að sækja alla þjónustu, einnig er í hverfinu mikið af búðum, apótek, banki og ísbúð svo eitthvað sé nefnt. Í þessu sama hverfi er eina vínræktarhérað borgarinnar og hin fræga Dóná er líka rétt hjá, getið rétt ímyndað ykkur sæluna í sumar! Húsið og íbúðin eru um hundrað ára gamalt en ímyslegt hefur auðvitað verið gert upp, það eru tvær stórar stofur/herbergi og fínt eldhús og þetta lítur allt mjög vel út. Á morgun munum við endanlega ganga frá samningum og fáum þá lykla og getum vonandi byrjað að flytja inn í vikunni, en þar sem við erum jú alslaus verður það á forgangslistanum að finna rúm, ísskáp og annað sem við getum ekki verið án. Þannig að ferð í IKEA og Caritas (Góða Hirðinn) er á næsta leyti.
Við erum bæði búin að skrá okkur í skólana sem byrjar 2. mars, það verður kærkomið að kynnast fólki og læra málið. Hlakka mikið til þess. En þangað til verður flutt inn í íbúðina sem við komum hugsanlega til með að vera í næstu tvö árin að minnsta kosti.
Set með nokkrar myndir af íbúðinni ykkur til yndis og ánægju.
Bless í bili.

Hrafnkell Sigurđsson